Leita í fréttum mbl.is
Embla

Charlie Brooker - How To Report The News

Þetta er Charlie Brooker, sem sýnir hvernig fréttir verða til, í hvaða röð sem fréttamaður segir frá, hvernig myndir eru notaðar í millitíðinni og hvernig hann kryddar fréttinna.


Ég er í smálöndum Svíþjóðar.

Ég flutti til Svíþjóðar 1989. Ég á heima í Huskvarna/Jönköping. Ég get ekki munað eftir að það hafi snjóað eins mikið og nú.

Ég tók þrjár myndir í gamni.

a2

a1

a3


mbl.is Vetrarhörkur trufla samgöngur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sardinía 1996

 

Árið 1996 var einhverskonar keppni á milli tveggja stærstu dagblaða Svíþjóðar, Expressen var með skafmiða og Aftonbladet var með símanúmer og kóða þar sem maður átti að hringja og svara þremur spurningum og sá sem myndi svara fljótast, vann.

Ég man að ég keypti Expressen og skóf miðann og síðan las ég í sama blaði að ef það fylgdi ekki með miði væri bara að hringja í visst númer og þeir myndu senda nýjan miða um hæl... ég skóf miðann og hugsaði með mér: hvernig vita þeir hvort ég sé búinn að fá miða, svo ég hringdi?!

Aftonbladet var með spurningar í blaðinu sínu svo ég keypti það líka og hringdi í númerið og svaraði spurningunum eins hratt og hægt var. Nokkrum vikum seinna fékk ég bréf innum lúguna frá dagblaðinu og ég var alveg viss um að þetta væri skafmiðinn frá Expressen, þú getur rétt ímyndað þér hvað mér brá þegar stóð til hamingju með vinninginn… ég vann ferð fyrir tvo til Sardiníu á Ítalíu með öllu tilheyrandi.

Róbert Ísak var bara 1 ½ árs og Eva var kasólétt af Jóakim, með bjúg og leið alls ekki vel en hún neitaði því harðlega að missa af þessu svo við skelltum okkur. Til þess að gera langa sögu stutta þá get ég sagt það að þetta var heitasti mánuðurinn á Sardiníu í manna minnum og það var enginn loftkæling í herberginu fyrstu nóttina og það versta var að herbergið var fyrir ofan eldhúsið… annars var ferðin meiriháttar og við komum aldrei til að gleyma henni.

Ástæðan fyrir þessari frásögn er þessi: Út af þessum hita gerðum við ekki mikið annað enn að liggja í eða við sundlaugina. Einn daginn fór ég með Róbert í stærstu vatnsrennibrautina og svona til öryggis var Eva í sundlauginni og var tilbúin að grípa Róbert ef ég myndi missa jafnvægið. Við feðgar náðum ótrúlegum hraða niður þessa rennibraut og þegar við þeyttumst í sundlaugina fór annar olnbogi minn á fullum krafti á handlegg Evu.

Hún fékk að sjálfsögðu margblett og um kvöldið var þessi margblettur orðin ansi stór, en það var minsta vandamálið. Eva og Róbert gátu bara ekki sofið allmennilega út af þessum kæfandi hita, svo ég (hetjan) tók þá ákvörðun að vifta með laki svo þau gætu sofið… ég svaf ekki mikið þessa nótt.

Daginn eftir leit ég út eins og draugur – rauðbrúnn draugur. Það leit út eins og ég væri að drepast úr þynnku og leit bara rónalegur út. Evu fannst að ég ætti það skilið að fá að taka því rólega, fá mér bjór og hvíla mig undir sólhlíf á meðan hún kasólétt, þreytuleg og með stærðarinnar marblett myndi sjá um Róbert. Ég sat með bjórinn minn undir sólhlífinni og naut þess að vera til, þegar kona kemur labbandi framhjá mér með þennan líka hryllilega hneykslunarlega svip, ef augnaráð gæti drepið þá væri ég dauður núna. Þessi kona labbaði að Evu, klappaði henni og sagði: You are beautiful!

Ég gerði mér grein fyrir því að kjaftarsögurnar voru komnar í gang og það að ég var alls ekki vinsælasti maðurinn á þessari eyju. En málið er að ég gæti aldrei veitt fólki sem mér þykir vænt um ofbeldi eða m.ö.o. þetta er ekki ég. Það var allavega staðreynd að fólkið á og í kringum hótelið var búið að dæma mig ofbeldismann.

PS. Í myndaalbúminu eru nokkrar myndir frá ferðinni.


Hvað er fræga fólkið langt? Svar:

MyndNafn cm MyndNafncm
Al Pacino168 Angelina Jolie170
Arnold Schwarzenegger185 Cameron Diaz173
Ashton Kutcher188 Christina Aguilera157
Danny DeVito147 Demi Moore163
Dustin Hoffman165 Eva Longoria155
Elvis Presley183 Halle Berry165
Johnny Depp175 Heidi Klum175
Justin Timberlake180Jennifer Lopez165
Matt Damon178Jessica Simpson157
Mel Gibson175Julia Roberts173
Robert De Niro175Kylie Minogue152
Sylvester Stallone175Nicole Kidman178
Will Smith188Uma Thurman180

mbl.is Kátir dvergar velkomnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Gunnar Svíafari

Gunnar Helgi Eysteinsson
Ég er giftur og bý í Svíþjóð... sorry! --------------------------------------- Nánari upplýsingar; smelltu á myndina. **************************

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband